Mannréttindayfirlýsing Sameinuðo Þjóðanna |
---|
InngangsorðÞað ber að viðurkenna, að hver maður sé jafnborinn til virðingar og réttinda, er eigi verði af honum tekin, og er þetta undirstaða frelsis, réttlætis og friðar i heiminum. Hafi mannréttindi verið fyrir borð borin og lítilsvirt, hefur slíkt haft í för með sér siðlausar athafnir, er ofboðið hafa samvizku mannkynsins, enda hefur því verið yfir lýst, að æðsta markmið almennings um heim allan sé að skapa veröld, þar sem menn fái notið málfrelsis , trúfrelsis og óttaleysis um einkalíf afkomu. Mannréttindi á að vernda með lögum. Að öðrum kosti hljóta menn að grípa til þess örþrifaráðs að rísa upp gegn kúgun og ofbeldi. Það er mikilsvert að efla vinsamleg samskipti þjóða í milli. Í stofnskrá sinni hafa Sameinuðu þjóðdirnar lýst yfir trú sinni á grundvallaratriði mannréttinda, á göfgi og gildi mannsins og jafnrétti karla og kvernna, enda munu þær beita sér fyrir félagslegum framförum og betri lífsafkomu með auknu frelsi manna. Aðildarríkin hafa bundizt samtökum um að efla almenna virðingu fyrir og gæzlu hinna mikilsverðustu mannréttinda í samráði við Sameinuðu þjóðirnar. Til þess að slík samtök megi sem best takast, er það ákaflega mikilvægt, að almennur skilningur verði vakinn á eðli slíkra réttinda og frjálsræðis. Fyrir því hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fallizt á mannréttindayfirlýsingu þá, sem hér með er birt öllum þjóðum og ríkjum til fyrirmyndar. Skulu einstaklingar og yfirvöld jafnan hafa yfirlýsingu þessa í huga og kappkosta með fræðslu og uppeldi að efla virðingu fyrir réttindum Þeim og frjálstræÞi, sem hér er að stefnt. Ber og hverjum einum að stuðla Þeim framförum, innan ríkis og ríkja í milli, er að markmiðum yfirlýsingarinnar stefna, tryggja almenna og virka viðurkenningu á grundvallaratriðum hennar og sjá um, að Þau verði í heiðri höfó, bæði meðal Þjóða aðildarríkjanna sjálfra og meðal Þjóða á landsvæðum Þeim, er hlita lögsögu aðildarríkja.
1. grein.Hver maður er borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu og réttindum. Menn eru gæddir vitsmunum og samvizku, og ber þeim að breyta bróðurlega hverjum við annan. 2. grein.Hver maður skal eiga kröfu á réttindum þeim og því frjálsræði, sem fólgin eru í yfirlýsingu þessari, og skal þar engan greinarmun gera vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.Eigi má heldur gera greinarmun á mönnum fyrir sakir stjórnskipulags lands þeirra eða landsvæðis, þjóðréttarstöðu þess eða lögsögu yfir því, hvort sem landið er sjálfstætt ríki, umráðasvæði, sjálfstjórnarlaust eða á annan hátt háð takmörkunum á fullveldi sínu. 3. grein.Allir menn eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi. 4. grein.Engan mann skal hneppa í þrældóm né nauðungarvinnu. Þrælahald og þrælaverzlun, hverju nafni sem nefnist, skulu bönnuð. 5. grein.Enginn maður skal sæta pyndingum, grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. 6. grein.Allir menn skulu, hvar í heimi sem er, eiga kröfu á að vera viðurkenndir aðilar að lögum. 7. grein.Allir menn skulu jafnir fyrir lögunum og eiga rétt á jafnri vernd þeirra, án manngreinarálits. Ber öllum mönnum réttur til verndar gegn hvers konar misrétti, sem í bága brýtur við yfirlýsingu þessa, svo og gagnvart hvers konar áróðri til þess að skapa slíkt misrétti. 8. grein.Nú sætir einhver maður meðferð, er brýtur í bága við grundvallarréttindi þau, sem tryggð eru í stjórnarskrá og lögum, og skal hann þá eiga athvarf hjá dómstólum landsins til þess að fa hlut sinn réttan. 9. grein.Ekki má eftir geðþótta taka menn fasta, hneppa þá i fangelsi eða varðhald né gera útlæga. 10. grein.Nú leikur vafi á um réttindi þegns og skyldur, eða hann er borinn sökum um glæpsamlegt athæfi, og skal hann þá njóta fulls jafnréttis við aðra menn um réttláta opinbera rannsókn fÞrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. 11. grein.
12. grein.Eigi má eftir geðþótta raska heimilisfriði nokkurs manns, hnýsast í einkamál hans eða bréf, vanvirða hann eða spilla mannorði hans. Ber hverjum manni lagavernd gagnvart slíkum afskiptum eða árásum. 13. grein.
14. grein.
15. grein.
16. grein.
17. grein.
18. grein.Allir menn skulu frjálsir hugsana sinna, sanfæringar og trúar. Í þessu felst frjálsræði til að skipta um trú eða játningu og enn fremur til að láta í ljós trú sína eða játningu, einir sér eða í félagi við aðra, opinberlega eða einslega, með kennslu, tilbeiðslu, guðsþjónustum og helgihaldi. 19. grein.Hver maður skal frjáls skoðana sinna og að því að láta þær í ljós. Felur slíkt frjálsræði í sér réttindi til þess að leita, taka við og dreifa vitneskju og hugmyndum með hverjum hætti sem vera skal og án tillits til landamæra. 20. grein.
21. grein.
22. grein.Hver þjóðfélagsþegn skal fyrir atbeina hins opinbera eða alþjóðasamtaka og í samræmi við skipulag og efnahag hvers ríkis eiga kröfu á félagslegu öryggi og þeim efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum réttindum, sem honum eru nauðsynleg til þess að virðing hans og þroski fái notið sin. 23. grein.
24. grein.Hverjum manni ber réttur til hvíldar og tómstunda, og telst þar til hæfileg takmörkun vinnutíma og reglubundið orlof að óskertum launum. 25. grein.
26. grein.
27. grein.
28. grein.Hverjum manni ber réttur til þess þjóðfélags- og milliþjóðaskipulags, er virði og framkvæmi að fullu mannréttindi þau, sem í yfirlýsingu þessari eru upp talin. 29. grein.
30. grein.Ekkert atriði þessarar yfirlýsingar má túlka á þann veg, að nokkru ríki, flokki manna eða einstaklingi sé heimilt að aðhafast nokkuð það, er stefni að því að gera að engu nokkur þeirra mannréttinda, sem hér hafa verið upp talin.
|